Spurning

Svar

Er hægt að nota UltraGlozz® á öll yfirborð ? UltraGlozz® er hægt að nota á alla lakkaða fleti, pólerað plast, gelcoat, messing, kopar, silfur,gull, ál, ryðfrítt stál, króm, spegla, marmara o.fl.
Hvað með lakkað tréverk ? Slípaðu tréverkið niður og lakkaðu aftur, eins margar umferðir og óskað er. Síðan er bónuð ein umferð með UltraGlozz®. Þessu er haldið við með því að bóna yfirborðið árlega. Þú munt fá glæsilega áferð.
Hvað gerist ef ég hef bónað bílinn áður með annari bóntegund ? Það gerist ekkert annað en að þú færð flottari bíl. Um leið og UltraGlozz® er borið á, þá leysir það upp leifarnar af gamla bóninu, hafi eitthvað verið eftir..
Hve oft á að bóna með UltraGlozz® ? Bíllinn þinn er vel varinn í allt að 18 mánuði, sem fer eftir aldri og ásigkomulagi lakksins. Við mælum með að bónað sé á 12 mánaða fresti, hafi lakkið verið meðhöndlað með UltraGlozz® frá því að það var nýtt. Veðrað lakk þarf að bóna oftar.
Er hægt að bóna mörg lög ? Hvað gerist ? Já, hægt er að bóna óendanlega margar umferðir, án þess að fyrri umferð fari af. Þetta óskadraumur bóngeggjarans, því eftir því sem bónlögunum fjölgar, þá verður gljáinn dýpri og flottari. Láttu líða 24 tíma við 16ºC milli umferða.
Hvernig fjarlægir maður UltraGlozz® ? Ekki er hægt að þvo UltraGlozz® af og hver hefur svo sem áhuga á því? Hægt er að slípa það af, ef lakka á bílinn að nýju. Undanskildir eru gúmmílistar og matt plast. Það er ágæt aðferð að meðhöndla slíka fleti með UltraGlozz® Vinyl eða UltraGlozz® SuperVinyl, áður en og eftir að bónað er. Ef ekkert er gert þá verða eftir hvítar bónleifar. Slíka fleti er einnig hægt að verja með límbandi.
Er hægt að nota UltraGlozz® á gler ? Já, þá er farið eftir aðferð 2 í leiðbeiningum. Þú munt komast að því að ekki þarf að nota rúðuþurrkurnar, þegar rignir.
Er hægt að lífga upp á gamalt lakk, gelcoat o.fl ? Já, það er mjög auðvelt að fjarlægja veðrað yfirborð í lakki með UltraGlozz®, en það fjarlægir ekki djúpar rispur.  Sjá nánar undir UGSPbrugis.htm
Þarf alltaf að nota UltraGlozz® sem hreinsir ? Nei, venjulega er það aðeins í fyrsta skiptið og þá aðeins ef vinnuflöturinn er ekki nýr. Sé vinnuflötur farinn að veðrast, er rétt að fara þannig að. Undantekning er lakkyfirborð, þar sem sólin hefur náð að upplita allan lit - slíkt yfirborð heldur aldrei lit. Dæmi um þetta er þegar hvítir blettir koma í ljós strax, eða að nokkrum tíma liðnum, frá  því að hreinsað var með UltraGlozz® eða öðrum hreinsi. Ef þú sérð slíka bletti í lakki bílsins, þá er aðeins eitt ráð: Lakka að nýju - ekki þýðir að bóna.
Hvernig virkar hreinsandi þáttur UltraGlozz® ? UltraGlozz® bónar/hreinsar þannig að veðruðu lakki er “lift af”, að hluta á kemiskan hátt og sumpart með hita, sem til verður við núning  - ekki ósvipað því og þegar lófum er núið saman. UltraGlozz® getur ekki fjarlægt djúpar rispur, en 1 eða fleiri umferðir munu loka rispunni, svo fremi að rispan nái ekki niður í lakkgrunninn.
Er hægt að nota UltraGlozz® á mála ? Já, reynið á hvaða málm sem fellur á, svo sem ryðfrítt stál í eldhúsum – ekki þó burstað stál.  Þú munt komast að því, að eftir meðhöndlun þá er erfitt að skilja eftir fingraför á bónuðu yfirborðinu.  Sama gildir um spegla, messing, kopar, silfur og mörg önnur efni.  Á ryðfrítt stál þarf að nota bónvél og þurrslípun, til þess að ná “regnboga” áhrifum úr yfirborðinu.  Smellið hér Paadivis.htm
Á að nota bónvél eða nægir að handbóna ? Varðandi hreinsun þá er kostur að nota bónvél – sér í lagi á fiberplötur/gel coat/ryðfrítt stál, þ.e. á bátum. Þannig hreinsarðu betur og færð jafnari árangur.  Varðandi innsilglun (umferð 2) þá er nóg að handbóna.
Hvernig læri ég að nota UltraGlozz® rétt ? Afar auðvelt – reyndu að bóna baðherbergisspegil..... og  ef þú gerir það rétt – þ.e. samkvæmt leiðbeiningunum – þá kemstu að því hve erfitt er að skilja eftir fingraför á yfirborðinu. Hugsanlega þarf að pólera seinni umferðina með þurrum svampi.  Þar með ertu orðinn sérfræðingur í notkun UltraGlozz® 
Getur UltraGlozz®  fjarlægt svartar rákir á bátum, tjaldvögnum og hjólhýsum ? Já, og það er ótrúlega auðvelt – og það án þess að valda nokkrum skaða !!
Skilur UltraGlozz® eftir bónhringi í lakkinu ? Nei